Flugi aflýst eða seinkað?

Við sérhæfum okkur í aðstoð við farþega sem eiga rétt á bótum vegna seinkunar, aflýsingar, neitunar um far og yfirbókunar samkvæmt reglugerð 261/2004/EB. Kannaðu rétt þinn til bóta.


Röskun á flugi – hver eru réttindin þín?

Flugfarþegar geta átt rétt á flugbótum sem geta numið allt að 600 evrum eða um 88 þúsund krónum*, eftir því hve langt var flogið og hvert hafi verið flogið – skiptir þar engu hversu mikið var greitt fyrir flugmiðann. Við köllum þetta staðlaðar skaðabætur.

Þær skiptast í eftirfarandi flokka, samkvæmt reglugerð 261/2004/EB:

250 evrur

fyrir flug þar sem fjarlægð nemur 1.500 km. eða minna

400 evrur

fyrir flug sem eru innan EES-svæðisins og flug þar sem fjarlægð er meiri en 1.500 km. en minni en 3.500 km.

600 evrur

fyrir öll flug sem hvorki falla undir A- eða B-lið

– sé seinkun langra flugferða á milli 3-4 tíma getur flugfélagið lækkað þessa fjárhæð um 50%

*miðað við gengi 17. september 2025

Því miður er óalgengt að farþegar nýti sér þennan rétt eða séu upplýstir um hann. Farbætur leggja áherslu á að gæta réttinda neytenda og sjá um samskipti við flugfélögin frá upphafi til enda.

Hvernig sækjum við bæturnar?

Skref 1.

Skref 1.

Taktu þér 3 mínútur í að fylla út formið okkar.

Skref 2.

Skref 2.

Við skoðum mál þitt og hefjum samskipti við flugfélagið ef við teljum bótarétt fyrir hendi.

Skref 3.

Ef við vinnum málið færð þú greiddar bætur – og við tökum vægt gjald (25%).

Vinna okkar er árangurstengd. Það þýðir að ef málið vinnst ekki, greiðir þú ekkert.

Hvaða atvik geta leitt til réttar á stöðluðum bótum?

1.

Aflýsing flugs

2.

Seinkun flugs sem nemur þremur klukkustundum eða meiru. Miðað er við heildarseinkun á komustað, þegar um tengiflug er að ræða

3.

Þegar farþega er neitað um far eða flug er yfirbókað (e. denied boarding)

Bótafjárhæðin veltur á vegalengd flugs en einnig hversu mikil seinkun varð, sé bótaréttur byggður á slíku.

,,Óviðráðanlegar aðstæður"

Flugfélagið kann að byggja á því að aðstæður hafi verið óviðráðanlegar en undir slíkt geta fallið óveður, verkföll starfsmanna, öryggisógnir, lokanir á lofthelgi og fleira. Þetta er undantekning frá meginreglunni. Meginreglan er sú að farþegi á bótarétt þegar skilyrði reglugerðarinnar eru uppfyllt og flugfélagið ber sönnunarbyrði fyrir fullyrðingunni. Því mælum við með því að þú sendir okkur kröfu þína þrátt fyrir skýringar sem hafa borist. Oft skipta því nákvæm málsatvikalýsing og gögn máli.