Spurt og svarað
Hvað gera Farbætur?
Við sérhæfum okkur í aðstoð við farþega sem eiga rétt á stöðluðum skaðabótum vegna seinkana, aflýsinga eða annarra atriða samkvæmt reglugerð nr. 261/2004/EB. Þóknun okkar er 25% af bótafjárhæð. Við sjáum um allt ferlið, færum lagaleg rök fyrir máli þínu og þú þarft ekki að spá í neinu.
Flugi mínu var aflýst. Á ég rétt á bótum?
Þú átt rétt á stöðluðum skaðabótum ef:
- Flugi þínu seinkaði um meira en 3 klst við komu
- Flugi þínu var aflýst með stuttum fyrirvara
- Þér var ekki hleypt um borð
Undanskilin eru þau atvik sem eru vegna óviðráðanlegra aðstæðna (t.d. slæmt veður, öryggisógn eða annað sem fellur undir skilgreininguna samkvæmt dómaframkvæmd).
Hversu háar geta bætur verið?
- 250 evrur fyrir flug innan 1500 km
- 400 evrur fyrir flug milli 1500–3500 km
- 600 evrur fyrir flug yfir 3500 km (til eða frá Íslandi)
Hvaða gögn þarf ég að senda?
- Flugmiða og bókunarstaðfestingu
- Nafn og samskiptaupplýsingar
- Eftir atvikum frekari gögn til þess að staðfesta kröfuna
Hversu langan tíma tekur ferlið?
Það fer eftir flugfélagi. Sum greiða innan nokkurra vikna, önnur leyfa ferlinu að dragast lengur. Ef við þurfum að kæra málið til Samgöngustofu eða dómstóla getur það tekið lengri tíma. Slíkt yrði að sjálfsögðu einungis gert í samráði við skjólstæðing.
Þarf ég að borga fyrirfram?
Nei, við vinnum á árangurstengdum grunni. Þú greiðir aðeins þjónustugjald ef krafan þín ber árangur.
Hversu mikið er þjónustugjaldið?
Við tökum 30% af bótunum ef krafan gengur eftir. Engin gjöld ef ekkert fæst greitt.
Er öruggt að senda gögnin mín til ykkar?
Já. Við förum eftir persónuverndarlögum líkt og persónuverndarstefna okkar kveður á um og notum gögnin einungis til að vinna að kröfu þinni.
Hvað gerist ef flugið mitt var utan Evrópu?
Ef flugið var til eða frá Íslandi þá gilda reglur um staðlaðar skaðabætur.
Það er langt síðan mitt atvik varð en ég vil sækja mér bætur. Er það of seint?
Það þarf ekki að vera. Almennt er hægt að gera kröfur allt að 4 ár aftur í tímann.
Flug mitt átti ekki viðkomu á Íslandi. Get ég samt nýtt mér þjónustu ykkar?
Þá getum við því miður ekki tekið málið að okkur, þar sem þjónustan takmarkast við komur og/eða brottfarir frá Íslandi.
