Persónuverndarstefna Farbóta

Farbætur leggja ríka áherslu á öryggi og trúnað persónuupplýsinga kúnna sinna. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvaða gögnum við söfnum, hvernig þau eru notuð, á hvaða lagagrundvelli vinnslan byggir og hvaða réttindi þú hefur sem skráður aðili.

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Justitia ehf.
Kt. 6909220450
Netfang: farbaetur@farbaetur.is

2. Hvaða gögn eru unnin?

Við vinnum meðal annars eftirfarandi upplýsingar: Nafn og samskiptaupplýsingar (netfang, símanúmer, heimilisfang), flugupplýsingar (flugnúmer, bókunarstaða, seinkanir og aflýsingar), greiðsluupplýsingar þegar við greiðum út bætur, afrit af skjölum sem nauðsynleg eru til að sækja kröfu (t.d. flugmiðar, bókunarnúmer, flugnúmer).

3. Tilgangur vinnslunnar

Persónuupplýsingar eru notaðar til að meta og sækja bætur samkvæmt reglugerð 261/2004/EB, hafa samband vegna málsins, uppfylla lagaskyldur samkvæmt lögum og EES-reglum og tryggja réttindi þín og okkar í tengslum við kröfur.

4. Lagagrundvöllur

Vinnslan byggir á: samningsskyldu, sbr. 6. gr. 1. mgr. b-lið almennu persónuverndarreglugerðarinnar nr. 2016/679 (hér eftir ,,persónuverndarreglugerðin”) (vinnsla nauðsynleg til að efna samning), lagaskyldu, sbr. 6. gr. 1. mgr. c-lið persónuverdarreglugerðarinnar (skyldur vegna neytendaréttar, bótaréttar o.fl.), lögmætum hagsmunum, sbr. 6. gr. 1. mgr. f-lið persónuverndarreglugerðrinnar (t.d. hagsmunir við að verja réttindi okkar í réttarferlum)

5. Móttakendur gagna

Gögn geta verið afhent til flugfélaga og umboðsmanna þeirra, Samgöngustofu og dómstóla þegar við fylgjum eftir kröfum, samstarfsaðila okkar sem veita okkur tölvuþjónustu eða greiðslumiðlun, aðila utan EES ef það er nauðsynlegt til að uppfylla kröfu (t.d. flugfélög utan Evrópu). Í slíkum tilvikum er tryggt að viðeigandi verndarráðstafanir séu gerðar.

6. Geymslutími

Við geymum persónuupplýsingar þar til kröfum hefur verið lokið og í samræmi við lögbundinn geymslutíma gagna (að jafnaði allt að 4 ár frá lokum máls, nema lengri geymsla sé lögbundin).

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að eigin gögnum, krefjast leiðréttingar á göllum, krefjast eyðingar gagna, að því marki sem lög heimila, mótmæla vinnslu eða biðja um takmörkun vinnslu eða flytja gögn milli þjónustuaðila. Einnig átt þú rétt á því að kæra mál þitt til Persónuverndar ef þú telur að vinnsla fari í bága við lög.

8. Öryggi gagna

Við notum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga, þar á meðal dulkóðun, aðgangsstýringar og reglulegt eftirlit.

9. Samskiptaupplýsingar

Ef þú hefur spurningar eða vilt nýta réttindi þín samkvæmt þessari stefnu, vinsamlegast hafðu samband við okkur.